Samkvæmt skýrslu bandarísku brunavarnasamtakanna NFPA um brunatjón sinna slökkvilið í Bandaríkjunum hundruðum þúsunda eldsvoða í íbúðarhúsnæði á hverju ári, og á hverju ári látast eða slasast þúsundir manna í þeim.
Í eldsvoða á heimili er hættan ekki aðeins fólgin í eldinum sjálfum heldur ekki síður í reykeitrun og því að fólk komist of seint út. Bandaríska brunamálastofnunin (USFA) bendir á að reykur geti breiðst hratt um heimilið og oft gert fólki erfitt að komast út innan fárra mínútna.
Þess vegna snúast eldvarnir ekki bara um að bregðast við þegar neyðarástand skapast, heldur um að búa sig undir það fyrir fram. Góðar eldvarnir heimilisins byggja á flóttaáætlun og nauðsynlegum öryggisbúnaði sem greinir hættu snemma og auðveldar heimilisfólki að komast út.
Af hverju þarf hvert heimili flóttaáætlun?
Flóttaáætlun skiptir sköpum því hún hjálpar fjölskyldunni að bregðast hratt og örugglega við eldsvoða, þegar hver sekúnda skiptir máli.
Margir gera ráð fyrir að þeir hafi nægan tíma til að bregðast við ef eldur kemur upp. Eldur á nútímaheimilum getur hins vegar breiðst hratt út vegna húsgagna úr gerviefnum, opinna rýma og eldfimra muna, og oft gefst aðeins nokkurra mínútna eða jafnvel sekúndna svigrúm til að komast út.
En hvað er flóttaáætlun? Flóttaáætlun er fyrir fram ákveðið skipulag sem hjálpar heimilisfólki að komast út á skipulegan og skilvirkan hátt. Góð flóttaáætlun ætti að innihalda:
- Að minnsta kosti tvær útgönguleiðir úr hverju herbergi
- Ákveðinn söfnunarstað utandyra
- Greiða leið að dyrum og gluggum
- Viðbragðsáætlun fyrir börn, eldra fólk og gæludýr
- Reglulegar æfingar
Bandaríska brunamálastofnunin mælir með því að heimili æfi rýmingu að minnsta kosti tvisvar á ári. Fjölskyldur ættu líka að æfa rýmingu að næturlagi, þar sem margir eldsvoðar á heimilum verða meðan fólk sefur.
Án skýrrar áætlunar er hætta á að fólk grípi til örþrifaráða eða reyni að komast út á óöruggan hátt. Reykur, hiti eða lokaðar leiðir geta gert aðalútgönguleiðina ónothæfa, og þess vegna skipta varaleiðir sérstaklega miklu máli í húsum á fleiri en einni hæð.
Hvaða eldvarnabúnaður ætti að vera á hverju heimili?
Á hverju heimili ætti að vera samsetning öryggisbúnaðar sem styður þrjú mikilvæg stig í eldsvoða: snemmbúna viðvörun, örugg viðbrögð og örugga rýmingu. Ekkert eitt tæki dugar eitt og sér; það eru margþættar varnir sem auka lífslíkurnar.
Eldvarnabúnaður fyrir heimili skiptist almennt í fjóra meginflokka:
1. Viðvörunarbúnaður
Viðvörunarbúnaður greinir hættu eins fljótt og hægt er og gefur fjölskyldunni meiri tíma til að bregðast við og komast út.
Reykskynjarar
Reykskynjarar nema reykagnir í loftinu og eru fyrstir til að láta vita þegar eldur kviknar. Snemmbúin viðvörun skiptir sköpum því aðstæður í eldsvoða geta orðið lífshættulegar á örfáum mínútum.
Bandarísku brunavarnasamtökin NFPA segja að virkir reykskynjarar dragi verulega úr hættunni á að fólk láti lífið í eldsvoða á heimili.
Bandarísku brunavarnasamtökin (NFPA)
Dánartíðni á hverja 1.000 eldsvoða í íbúðarhúsnæði er um 60 prósentum lægri á heimilum með virka reykskynjara en á heimilum þar sem engir reykskynjarar eru eða þeir virkuðu ekki.
Heimild: NFPA, „Smoke Alarms in US Home Fires“
Kolmónoxíðskynjarar
Kolmónoxíð (CO) er ósýnileg og lyktarlaus lofttegund sem myndast við ófullkominn bruna, til dæmis í tækjum sem brenna eldsneyti. Í eldsvoða getur styrkur kolmónoxíðs einnig orðið hættulegur.
CO-skynjarar greina hættulegan styrk lofttegundarinnar snemma, sérstaklega að næturlagi þegar fólk tekur síður eftir einkennum.
2. Búnaður til fyrstu viðbragða
Þessi búnaður er ætlaður til að ráða niðurlögum lítilla elda á allra fyrstu stigum, en hann kemur aldrei í stað rýmingar.
Slökkvitæki
Handslökkvitæki geta slökkt litla, afmarkaða elda, til dæmis í eldhúsi eða í rafbúnaði. Þau ætti þó aðeins að nota ef eldurinn er enn viðráðanlegur og útgönguleiðir eru greiðar.
3. Búnaður sem auðveldar rýmingu
Rýmingarbúnaður hjálpar fjölskyldunni að komast örugglega út þegar aðalútgönguleiðir eru lokaðar eða hættulegar.
Björgunarstigar
Björgunarstigi (fellistigi sem er krækt í gluggakarm) veitir aðra útgönguleið í húsum á fleiri en einni hæð þegar ekki er hægt að nota stigann innanhúss. Hann er yfirleitt geymdur nálægt svefnherbergjum á efri hæð svo fljótlegt sé að grípa til hans, og honum er rennt út um glugga í neyð. Hann er því mikilvæg varaleið en ekki aðalútgönguleið.
4. Búnaður til að sjá og halda sambandi
Þessi búnaður bætir sýnileika og samskipti í neyð, sérstaklega ef rafmagnið fer.
Neyðarlýsing og tilkynningar
Vasaljós, neyðarlýsing og tilkynningar í síma hjálpa fjölskyldunni að rata í myrkri eða reyk og fylgjast með meðan á rýmingu stendur.
Hvernig styður ólíkur öryggisbúnaður við örugga rýmingu?
Ólíkur öryggisbúnaður gegnir ólíku hlutverki í neyð. Saman mynda tækin margþættar eldvarnir fyrir heimilið.

1. Snemmbúin viðvörun frá reyk- og CO-skynjurum
Í mörgum eldsvoðum á heimilum er tíminn mikilvægasti þátturinn. Eldur getur breiðst hratt út og reykur getur á fáeinum mínútum skert bæði sýn og öndun. Viðvörunarbúnaður er því nauðsynlegur, því hann gefur fjölskyldunni fyrsta merkið um að koma sér út.
Samtengdir reykskynjarar eru sérstaklega gagnlegir því þegar einn skynjari nemur reyk fara allir skynjararnir í húsinu í gang samtímis. Þannig geta allir brugðist hratt við, jafnvel þótt fjölskyldumeðlimir séu í ólíkum herbergjum eða sofandi.
Til eru sambyggðir reyk- og CO-skynjarar sem nema bæði reyk og kolmónoxíð í einu tæki. Þráðlaus samtenging lætur þá alla fara í gang samtímis í ólíkum herbergjum, og með innsiglaðri rafhlöðu sem endist í 10 ár þarf sjaldnar að sinna viðhaldi.
Ef þú vilt snjalla vöktun geta snjallir reykskynjarar sem tengjast grunnstöð sent tilkynningar í rauntíma í símann. Það kemur sér sérstaklega vel þegar enginn er heima eða þegar viðvörunin þarf að berast skýrt á milli hæða. Á x-sense.is færðu til dæmis snjallreykskynjarann XS01-M sem tengist grunnstöðinni SBS50 og X-Sense appinu.
Snjallir CO-skynjarar með tilkynningum í app og tengingu við grunnstöð veita aukna vörn gegn kolmónoxíði. Þeir skipta sérstaklega máli á heimilum þar sem eru tæki sem brenna eldsneyti, því þar getur kolmónoxíðhætta leynst í neyð.
2. Slökkvitæki og fyrstu viðbrögð
Slökkvitæki eru ætluð til að slökkva eld á allra fyrstu stigum, til dæmis lítinn eld í eldhúsi eða neista í rafbúnaði. Í slíkum tilvikum geta snögg viðbrögð komið í veg fyrir að eldurinn breiðist út og gefið heimilisfólki meiri tíma til að komast út.
Aðstæður í eldsvoða geta þó breyst mjög hratt. Ef reykur fer að breiðast út eða skyggni minnkar er ekki lengur óhætt að reyna að slökkva eldinn. Þá á rýming alltaf að hafa forgang fram yfir slökkvistarf. Hringdu í 112 um leið og þú ert komin(n) út.
3. Varaleiðir af efri hæðum
Í húsum á fleiri en einni hæð getur rýming orðið flóknari ef reykur eða eldur lokar stiganum. Þess vegna er önnur útgönguleið af efri hæðum mikilvægur hluti af eldvörnum heimilisins.
Björgunarstigi veitir aðra útgönguleið, því með honum er hægt að fara út um glugga þegar aðalleiðirnar eru ófærar. Hann er yfirleitt geymdur í svefnherbergjum á efri hæð eða nálægt gluggum þar sem fljótlegt er að grípa til hans.
Margar fjölskyldur sem leita að góðum björgunarstiga leggja áherslu á að fljótlegt sé að koma honum fyrir undir álagi, því í neyð er skyggni oft lítið og spennan mikil. Í raunverulegum aðstæðum er stigi sem hægt er að krækja fljótt fastan og nota án flókinna handtaka oft hentugri fyrir fjölskyldur með börn eða eldra fólk.
Hvernig geta fjölskyldur byggt upp betri eldvarnir heima?
Hvernig eldvörnum heimilisins er best háttað fer eftir skipulagi húsnæðisins og þörfum heimilisfólksins.
1. Íbúðir og minni heimili
Á minni heimilum er gott að leggja áherslu á:
- Reykskynjara nálægt svefnherbergjum
- CO-skynjara nálægt tækjum sem brenna eldsneyti
- Nett slökkvitæki
- Greiðar útgönguleiðir
2. Hús á fleiri en einni hæð
Í stærri húsum er oft gagn að:
- Samtengdum reykskynjurum
- Fleiri reykskynjurum svo allt húsið sé vaktað
- Björgunarstigum fyrir herbergi á efri hæð
- Fleiri en einni útgönguleið
3. Heimili með börnum eða eldra fólki
Fjölskyldur með ung börn eða eldra fólk ættu að hafa rýmingarferlið eins einfalt og hægt er. Gagnleg ráð eru meðal annars:
- Að æfa rýmingu reglulega
- Að nota tæki með raddviðvörun
- Að halda göngum auðum
- Að ákveða fyrir fram hver aðstoðar hvern við rýmingu

Snjallir, samtengdir reykskynjarar geta líka aukið öryggið á heimilum þar sem fjölskyldumeðlimir sofa í ólíkum hlutum hússins.
Hversu oft á að yfirfara eða endurnýja eldvarnabúnað?
Eldvarnabúnaður þarf ólíkt viðhald eftir því hvaða hlutverki hann gegnir. Lífsnauðsynlegan viðvörunarbúnað þarf að prófa oftar, en neyðar- og varabúnaður er yfirfarinn sjaldnar.
1. Reyk- og kolmónoxíðskynjarar
Þessa mikilvægu viðvörunarskynjara ætti að prófa mánaðarlega, og samkvæmt ráðleggingum NFPA ætti að skipta flestum þeirra út á um það bil 10 ára fresti.
2. Slökkvitæki
Slökkvitæki ætti að skoða mánaðarlega og láta þjónustuaðila yfirfara þau árlega svo tryggt sé að þau virki í neyð.
3. Rafhlöður
Í tækjum með útskiptanlegum rafhlöðum ætti að athuga rafhlöðustöðuna við mánaðarlega prófun og skipta um rafhlöður um leið og viðvörun um litla rafhlöðu birtist.
4. Björgunarstigar
Björgunarstiga ætti að skoða nokkrum sinnum á ári til að ganga úr skugga um að þeir séu heilir og hægt sé að koma þeim fyrir án vandræða þegar á þarf að halda.
Niðurstaða
Eldvarnir hefjast löngu áður en neyðarástand skapast. Vel undirbúin fjölskylda sameinar skýra flóttaáætlun og áreiðanlegan öryggisbúnað, sem eykur yfirsýn við rýmingu og dregur úr ringulreið við hættulegar aðstæður.
Reykskynjarar, kolmónoxíðskynjarar, slökkvitæki og björgunarstigar gegna hver sínu hlutverki, en saman mynda þeir heildstæðari öryggisvarnir fyrir heimilið.
Reglulegar prófanir, skýr flóttaáætlun og snemmbúin viðvörun hjálpa fjölskyldunni að bregðast hraðar við þegar hver sekúnda skiptir máli.
Algengar spurningar
Hvað telst til eldvarnabúnaðar?
Algengur eldvarnabúnaður á heimilum er reykskynjarar, kolmónoxíðskynjarar, slökkvitæki, eldvarnarteppi, björgunarstigar, neyðarlýsing og samtengd viðvörunarkerfi.
Hver eru „þrjú P“ eldvarna?
Á ensku er oft talað um „þrjú P“ eldvarna:
- Prevent: að fyrirbyggja
- Protect: að verja
- Prepare: að undirbúa
Þessar meginreglur hvetja heimili til að draga úr eldhættu, setja upp öryggisbúnað og æfa viðbrögð við neyðarástandi.
Hver eru „þrjú A“ öryggis?
„Þrjú A“ öryggis eru gjarnan sögð vera Awareness, Assessment og Action, það er að segja árvekni, mat og aðgerðir.
Í eldsvoða þýðir það að átta sig fljótt á hættunni, meta hvernig best er að komast út og bregðast strax við.
Hvað þarf að hafa í huga þegar björgunarstigi er valinn?
Góður björgunarstigi þarf að vera nógu langur miðað við hæð hússins, bera nægilega þyngd, vera fljótlegur í notkun og með stöðugum og stömum þrepum.
Borgar sig að hafa samtengda reykskynjara?
Já. Samtengdir reykskynjarar láta vita á mörgum stöðum í húsinu samtímis, sem getur gefið fjölskyldunni dýrmætan aukatíma til að komast út.
Hversu oft ætti fjölskyldan að æfa rýmingu?
Bandaríska brunamálastofnunin (USFA) mælir með því að æfa rýmingu heimilisins að minnsta kosti tvisvar á ári, þar á meðal rýmingu að næturlagi.
