Frí heimsending yfir 15.000 kr.

Eldvarnir

Leki og loftgæði

Heimilisöryggi

Grunnstöð og aukahlutir

PakkasmiðjanVeistu ekki hvað þú þarft?

Svaraðu nokkrum spurningum og við setjum saman pakka sem passar þínu heimili.

Opna pakkasmiðjunaSkoða allar vörur
Aðeins í dag

Black Friday
25% af öllu

Allar X‑Sense vörur á 25% afslætti í 24 klukkustundir, föstudaginn 27. nóvember.

Tilboðið endar eftir
00klst 00mín 00sek
Snjall reykskynjari XS01‑M

Traust vörn
allan sólarhringinn

Samtengdir reykskynjarar sem láta alla vita í einu og senda tilkynningu í símann, hvar sem þú ert.

Snjallir skynjarar frá X‑Sense

Öryggi fyrir
heimilið

Yfir 15 milljónir X‑Sense skynjara vaka yfir heimilum um allan heim, allan ársins hring. Láttu þá líka vaka yfir þínu.

„Appið er algjör snilld.“
Guðrún Ágústa, viðskiptavinur
Mæðgur brosa og skoða X-Sense skynjara saman í stofunni heima
Allt er í lagi heima5 skynjarar virkir · Rafhlöður í góðu lagi
Lekaskynjari SWS0A

Vatnsleki?
Fáðu tilkynningu í símann

Aðeins 17 mm þykkur skynjari sem kemst undir þvottavélina. Grunnstöðin gefur frá sér viðvörun um leið og vatn finnst.

Snjall hitaskynjari XH02‑M

Hitaskynjari
fyrir eldhúsið

Hann nemur hita en ekki reyk. Hann þegir því þegar þú steikir, en lætur alla skynjarana í húsinu vita ef kviknar í.

Mest seldi snjall reykskynjarinn í Norður-Ameríku*

*Byggt á sölu snjallra reykskynjara á Amazon í Bandaríkjunum árið 2024. Vottanir eiga við XS01-M.

CE vottunTÜV vottunUKCA vottunGreenCircle vottunBSI vottunRoHS vottun
Kona í sófanum fær tilkynningu um reykskynjara í X-Sense appinu
Smá orðsending frá okkur

Við viljum að öll heimili séu örugg

Eldur getur kviknað hvenær sem er, líka á nóttunni þegar allir sofa. Reykskynjarar á réttum stöðum eru einföldustu og ódýrustu varnirnar sem til eru, og þær geta skipt öllu máli.

Þess vegna bjóðum við snjalla X‑Sense skynjara og öryggisvörur fyrir heimilið. Við viljum að fleiri heimili séu með samtengda skynjara sem vekja alla í húsinu og láta þig vita í símann, sama hvar þú ert.

Ef þú ert óviss um hvað hentar þínu heimili skaltu bara senda okkur línu og við svörum þér.

R Teymið hjá ReykvörnViðurkenndur sölu- og dreifingaraðili X‑Sense á Íslandi
Vinsælar vörur

Eitthvað fyrir hvert herbergi

Smelltu á plúsinn til að safna í körfu. Allt fer svo beint í körfuna á x‑sense.is.

Þú átt 15.000 kr. eftir í fría heimsendingu
Karfan er tóm. Byrjaðu á reykskynjara í svefnherbergið.
Fara í körfu

Strjúktu til að sjá fleiri vörur

Fólk heima í bjartri stofu með X-Sense reykskynjurum
Vinsælasti pakkinn FS31

Allt húsið vaktað
í einu appi

Þrír snjallir reykskynjarar XS01‑M og grunnstöð SBS50. Góður grunnur sem þú getur byggt ofan á eftir þörfum heimilisins.

  • Þráðlaust samtengdir
  • Snjallstýring í appi
  • 85 dB viðvörun
  • 5 ára rafhlaða

Pakkinn einn og sér nær fríri heimsendingu

Gagnvirk sýnidæmi

Sjáðu hvernig þetta virkar

Prófið sjálf

Potturinn gleymdist
á helluborðinu

Ýttu á takkann og sjáðu hvað gerist þegar skynjarinn í eldhúsinu finnur reyk. Allir skynjarar í húsinu fara í gang á sama tíma og þú færð tilkynningu í símann.

Ýttu hér og sjáðu hvað gerist
Ýttu á pottinn Svefnherbergi Barnaherbergi Stofa Eldhús Þvottahús
Reykur í eldhúsiAllir skynjarar eru farnir í gang. Opnaðu appið til að þagga niður.
Prófið líka

Leki undir
þvottavélinni

Vatnsleki getur farið lengi óséður. Ýttu á takkann og sjáðu hvað gerist þegar vatn nær lekaskynjaranum. Grunnstöðin gefur frá sér viðvörun, skynjarinn blikkar og þú færð tilkynningu í símann.

Ýttu hér og sjáðu hvað gerist
Lekaskynjari Píp! Píp! Grunnstöð Ýttu á slönguna
Vatnsleki í þvottahúsiLekaskynjarinn undir þvottavélinni fann vatn. Skrúfaðu fyrir vatnið.
Prófað og viðurkennt

Viðurkennt af óháðum
prófunaraðilum í Evrópu

X‑Sense vörur hafa fengið viðurkenningar frá óháðum prófunar og samanburðaraðilum.

ConnectConnect
ExpertenTestenExpertenTesten
KaufkompassKaufkompass
IBTIBT
Warentest OnlineWarentest Online
ReviewedReviewed
Vergleich.orgVergleich.org
Connect
ExpertenTesten
Kaufkompass
IBT
Warentest Online
Reviewed
Vergleich.org

Viðurkenningarnar eiga við ýmsar X‑Sense vörur á evrópskum markaði.

Af hverju að versla á x‑sense.is

Frí heimsendingÁ pöntunum yfir 15.000 kr.
Örugg greiðslaDulkóðuð greiðslugátt
Allt að 5 ára ábyrgðÁ X‑Sense vörum
14 daga skilarétturSamkvæmt lögum um neytendasamninga
Pakkasmiðjan

Búðu til þinn
X‑Sense pakka

Svaraðu nokkrum spurningum og við setjum saman pakka sem passar þínu heimili.

Spurning 1 af 6
X‑Sense appið

Heimilið í vasanum,
allan sólarhringinn

Download on the App Store Get it on Google Play
Skjár í X-Sense appinu sem sýnir viðvörun um reyk Skjár í X-Sense appinu þar sem tengiliðum er bætt við Skjár í X-Sense appinu sem sýnir prófun á skynjara
MunurinnMeira en venjulegur reykskynjari
EiginleikiX‑SenseVenjulegur
reykskynjari
Hávær viðvörun
Samtengdir: allir fara í gang í einu
Tilkynning í símann, hvar sem þú ert1
Þagga niður falska viðvörun úr símanum1
Prófa skynjarana úr appinu, án stiga1
Reykur, hiti, leki, kolsýringur og öryggiskerfi í einu appi1
Deila aðgangi með fjölskyldunni1

1 Með SBS50 grunnstöð og ókeypis X‑Sense appinu.

Yfir 15 milljónir X‑Sense skynjara
vaka yfir heimilum um allan heim.
Nú líka yfir þínu.

Umsagnir

Það sem viðskiptavinir segja

Þetta segja viðskiptavinir okkar um X‑Sense.

“
Frábær vara. Auðvelt að setja upp og appið gerir allt svo þægilegt.
BIBjörn IngiViðskiptavinur
“
Ég bætti við fleiri skynjurum í kerfið og allt virkar fullkomlega saman.
JJónasViðskiptavinur
“
Virkar vel. Ég veit að heimilið mitt er öruggt.
SSaraViðskiptavinur
“
Appið er algjör snilld.
GÁGuðrún ÁgústaViðskiptavinur
15 milljónir+skynjarar seldir um allan heim
6vottanir á XS01-M, þar á meðal TÜV og BSI
50+lönd þar sem X‑Sense fæst
Spurt og svarað

Góðar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og við getum.

Senda fyrirspurn
Hvað þarf ég marga skynjara?

Góð þumalputtaregla er einn í hvert svefnherbergi, einn á gang á hverri hæð og einn í stofu. Hitaskynjari hentar betur í eldhúsið þar sem gufa getur sett venjulegan reykskynjara af stað. Þú getur tengt allt að 50 skynjara og tæki við eina SBS50 grunnstöð. Prófaðu pakkasmiðjuna til að reikna út hvað hentar þínu heimili.

Þarf ég grunnstöð?

Nei, skynjararnir virka sjálfstætt og vara við á staðnum án grunnstöðvar. En til að fá tilkynningar í símann þarftu grunnstöð eins og SBS50. Ein grunnstöð getur tengt allt að 50 X‑Sense snjalltæki, svo hún dugar fyrir flest heimili. Hún tengist heimanetinu þínu á 2,4 GHz Wi‑Fi.

Get ég bætt við skynjurum seinna?

Já. Þú getur tengt reykskynjara, hitaskynjara, lekaskynjara, hurðaskynjara og hreyfiskynjara við sama kerfi hvenær sem er.

Er mánaðarleg áskrift að appinu?

Nei. X‑Sense appið er ókeypis bæði í App Store og Google Play og það þarf enga mánaðarlega áskrift til að nota skynjarana. Tilkynningar í símann, deiling með fjölskyldunni og prófanir á skynjurum úr appinu kosta ekkert aukalega.

Hvað kostar sendingin?

Heimsending er frí ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira.

Get ég skilað vöru?

Já. Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 getur þú hætt við kaup í netverslun innan 14 daga frá því að þú tókst við vörunni, án þess að gefa upp ástæðu. Þetta gildir líka um vörur á tilboði.

Láttu okkur vita innan frestsins, til dæmis með því að hafa samband, og sendu vöruna til baka innan 14 daga frá tilkynningunni. Við endurgreiðum allar greiðslur, þar með talinn upphaflegan sendingarkostnað, innan 14 daga frá því að þú lætur okkur vita. Við megum þó bíða með endurgreiðsluna þar til varan hefur borist okkur eða þú hefur sýnt fram á að hún sé komin í sendingu.

Þú greiðir beinan kostnað við að senda vöruna til baka. Þú mátt skoða og prófa vöruna eins og í verslun, en berð ábyrgð á rýrnun á verðgildi hennar umfram það.

Kveiktu á kertunum
með hugarró

Samtengdir snjallir reykskynjarar, sendir heim að dyrum.

Skoða vörurnar
Fjölskylda slakar á í stofunni heima, X-Sense reykskynjari á veggnum
Segull frá X-Sense til að hengja upp reykskynjara
Reykskynjari kominn í körfu

Viltu segul með?

Segull til að hengja upp reykskynjarann.

  • Skrúfulaus uppsetning, engin borvél og engin göt
  • Límdur upp í loftið og skynjarinn festist á seglinum
  • Auðvelt að taka skynjarann niður og setja hann aftur upp
1.099 kr.stykkið