Reykvörn ehf. er viðurkenndur dreifingar- og söluaðili X-Sense á Íslandi.
Reykvörn er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggislausnum fyrir fyrirtæki og heimili. Við leggjum áherslu á vandaðar og áreiðanlegar lausnir sem stuðla að auknu öryggi og veita fólki hugarró í daglegu lífi.
Með X-Sense bjóðum við upp á nútímalegar og notendavænar öryggislausnir sem henta íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Markmið okkar er að gera öryggi einfalt og aðgengilegt, hvort sem um er að ræða reykskynjara, lekaskynjara, Co2 skynjara eða aðrar snjallar öryggislausnir frá X-Sense.
Hjá Reykvörn skiptir persónuleg þjónusta okkur miklu máli. Við viljum að viðskiptavinir okkar geti treyst bæði vörunum sem við bjóðum og þjónustunni sem stendur að baki þeim. Við erum til staðar til að veita ráðgjöf og aðstoða við að finna réttu lausnina fyrir hvert heimili og fyrirtæki.