Byrjunarpakki

Snjall reykskynjariXS01-M
Samtengdur snjall reykskynjari. Ef einn fer í gang fara allir í gang, og með SBS50 grunnstöð færðu tilkynningu í símann hvar sem þú ert.
SBS50 grunnstöð er nauðsynleg til að fá tilkynningar í símann. Skoða grunnstöðina
- Frí heimsending yfir 15.000 kr.
- 14 daga skilaréttur
- 5 ára ábyrgð
- Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili
Allir vara við í einu
Tengist allt að 24 skynjurum þráðlaust, með allt að 500 m drægni á opnu svæði.
Tilkynning í símann
Með SBS50 grunnstöð færðu viðvörun í X-Sense appið um leið og reykur finnst.
85 dB viðvörun
Nógu hávær til að vekja alla í húsinu, líka fyrir luktum dyrum.
10 ára líftími
Skynjarinn endist í 10 ár. Skiptanleg litíum rafhlaða endist í allt að 5 ár.
Snjall reykskynjari XS01-M
XS01-M er þráðlaus reykskynjari sem talar við aðra X-Sense skynjara á heimilinu. Þegar einn þeirra greinir reyk fara allir samtengdir skynjarar í gang, svo viðvörunin heyrist í öllu húsinu. Tengdu hann við SBS50 grunnstöð og þú færð rauntímatilkynningar í símann, getur þaggað niður falska viðvörun úr appinu og séð stöðu rafhlöðunnar. Skrúfur, festing og rafhlaða fylgja með, eða þú getur notað skrúfulausan segul.
Virkar með
Tæknilýsing
- Tegund
- XS01-M
- Líftími
- 10 ár
- Rafhlaða
- 1 × CR123A litíum, skiptanleg, allt að 5 ára ending
- Viðvörun
- 85 dB
- Samtenging
- Allt að 24 skynjarar
- Drægni
- Allt að 500 m á opnu svæði
- Staðall
- EN 14604
- App
- X-Sense Home Security, með SBS50 grunnstöð
- Uppsetning
- Skrúfur og festing fylgja, eða segull
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband.
Lestu meira: Reglur um reykskynjara og Snjall eða hefðbundinn reykskynjari.
Hvar á reykskynjarinn að vera?
Mælt er með einum í hverju svefnherbergi, einum á gangi á hverri hæð og einum í stofu. Í eldhúsið hentar hitaskynjari betur.
Virkar hann án grunnstöðvar?
Já. Hann virkar sjálfstætt og samtengist öðrum skynjurum, en til að fá tilkynningar í símann þarf SBS50 grunnstöð.
Hve marga get ég samtengt?
Allt að 24 skynjara í einu samtengdu kerfi.
Hvað kostar að skipta um rafhlöðu?
Lítið. Í hverjum skynjara er aðeins ein CR123A litíum rafhlaða sem endist í allt að 5 ár. Ný rafhlaða kostar um 1.300 kr., en verðið er mismunandi eftir sölustöðum. Skynjarinn lætur vita með stuttu pípi þegar rafhlaðan er að tæmast, og í appinu sérðu stöðu hennar.
Passar vel með
Settu saman pakka fyrir heimilið
Pakkasmiðjan reiknar út hvað þú þarft út frá stærð heimilisins.