Jólin eru tími gleði og hláturs. Samvera með fjölskyldunni og góðar kveðjur frá vinum gera hátíðina enn hlýlegri. En einmitt á þessum árstíma þurfum við að vera vakandi fyrir leyndum hættum svo brosin breytist ekki í tár.
Ofhlaðnar innstungur, kerti sem gleymist að slökkva á og jólaskraut geta auðveldlega orðið að hættu ef ekki er gætt að. Þess vegna skiptir miklu máli að hver fjölskylda hafi helstu öryggisráð í huga yfir jólin. Þau tryggja öryggi heimilisins, gleði fjölskyldunnar og hugarró yfir hátíðirnar.
Jólaskraut og jólatréð
Fallega skreytt jólatré er hjarta jólanna á mörgum heimilum, en það er líka ein mesta brunahættan á heimilinu yfir hátíðirnar. Þurrar greinar, flækjur í snúrum og bilaðar seríur geta kveikt eld á örfáum sekúndum.
Til að koma í veg fyrir slíkt eru hér nokkur einföld og hagnýt ráð:
1. Veldu rétta tréð: Ef þú ert með lifandi jólatré skaltu velja tré með ferskum, skærgrænum nálum og gæta þess að það hafi alltaf nóg vatn í fætinum. Þornað tré er mjög eldfimt.
2. Staðsetningin skiptir máli: Hafðu jólatréð að minnsta kosti 90 cm frá hitagjöfum eins og arni, ofnum og kertum.
3. Yfirfarðu seríurnar: Áður en þú stingur jólaseríunum í samband skaltu athuga hvort snúrur séu slitnar eða perur brotnar. Það sama á við um aðventuljósin í gluggunum.
4. Slökktu ljósin: Slökktu alltaf á seríunum á trénu áður en þú ferð að sofa eða ferð að heiman.
5. Forðastu brothætt skraut: Notaðu skraut sem brotnar ekki, sérstaklega ef börn eða gæludýr eru á heimilinu.
Þessi ráð draga verulega úr brunahættu og líkum á að börn slasist, svo allir geti notið hátíðarinnar.
Ljós, rafmagn og eldamennska
Hvað fylgir stórhátíðum? Ljós í hverjum glugga, hlátur og gleði með fjölskyldu og vinum og alls kyns góður matur. Allt þetta skapar hlýja jólastemningu en kallar líka á sérstaka aðgát. Með því að huga að öryggi í kringum ljós, rafmagn og eldamennsku heldur jólagleðin áfram.
1. Rafmagnsöryggi
- Ofhlaðið aldrei innstungur og tengið ekki framlengingarsnúrur hverja í aðra.
- Notaðu inni- og útiseríur á réttum stöðum. Notaðu aldrei seríur sem eru ætlaðar til notkunar innandyra úti.
- Haltu snúrum frá hitagjöfum og gönguleiðum svo enginn hrasi um þær og þær ofhitni ekki.
- Skiptu um skemmdar perur og taktu alltaf seríuna úr sambandi áður en þú lagfærir skreytingar.
2. Örugg eldamennska
- Farðu aldrei frá eldavélinni á meðan þú eldar. Eldavél sem gleymist er ein algengasta orsök bruna yfir hátíðirnar.
- Haltu eldfimum hlutum, svo sem viskastykkjum, gjafapappír og gluggatjöldum, frá opnum eldi og heitum hellum.
- Hreinsaðu fitu reglulega af eldavél og úr viftu til að draga úr eldhættu.
- Haltu börnum og gæludýrum frá eldunarsvæðinu.
Fjölskylduboð, börn og gæludýr
Jólin eru tími jólaboða og samveru, og þeim fylgir líf og fjör: börn á hlaupum, gæludýr að kanna nýja skrautið og gestir á ferð milli herbergja. Til að tryggja öryggi allra skaltu hafa eftirfarandi í huga:
- Haltu kertum og brothættum hlutum þar sem börn ná ekki til.
- Notaðu rafhlöðukerti í stað kerta með opnum loga, til dæmis í aðventukransinum.
- Haltu smáu skrauti þar sem gæludýr og lítil börn ná ekki til, svo þau setji það ekki upp í sig og köfnunarhætta skapist.
- Hafðu auga með börnum nálægt arni og eldunarsvæði.
- Farðu yfir helstu atriði með fjölskyldu og gestum, ekki síst börnunum: hvar útgangar eru og hvar slökkvitæki og eldvarnarteppi eru geymd, svo allir viti hvað á að gera ef eitthvað kemur upp á.
Þegar þú ferð að heiman yfir hátíðirnar
Hvort sem þú ert að heimsækja ættingja og vini eða fara í frí er gott að fara yfir heimilið áður en þú leggur af stað, svo allt sé öruggt á meðan enginn er heima. Hér eru nokkur atriði til að hafa í huga:
- Taktu óþarfa raftæki úr sambandi og slökktu ljósin, líka jólaseríur og aðventuljós.
- Gakktu úr skugga um að hurðir og gluggar séu vel lokaðir.
- Forðastu að deila ferðaáætlunum á samfélagsmiðlum.
- Biddu nágranna eða vin um að líta eftir húsinu.
- Gakktu úr skugga um að skynjarar með fjarvöktun séu uppsettir, kveikt á þeim og appið virkt.
Og ef þú ert að keyra langt um hátíðirnar: skipuleggðu ferðina vel, keyrðu ekki þreytt(ur), kynntu þér færð og veður og hafðu neyðarbúnað í bílnum.
Skynjarar sem vakta heimilið á meðan þú ert að heiman
Jafnvel þegar allrar varúðar er gætt geta óhöpp átt sér stað. Hvað ef þú ert á ferðalagi eða hjá ættingjum? Þá koma snjallir öryggisskynjarar að góðum notum. Virkur reykskynjari, kolmónoxíðskynjari eða hitaskynjari lætur þig vita strax ef eitthvað gerist heima svo þú og fjölskyldan getið brugðist við.
Áður en þú ferð að heiman skaltu ganga úr skugga um að skynjararnir séu á réttum stöðum og prófa þá. Það er eitt mikilvægasta eldvarnaráðið yfir jólin.
Hér eru nokkrar gerðir skynjara sem vert er að hafa í huga.
1. Samtengdir snjallreykskynjarar
X-Sense XS01-M er nettur en öflugur samtengjanlegur reykskynjari. Nokkrir saman mynda öflugt öryggisnet um allt heimilið: ef einn fer í gang fara allir í gang. Í gegnum X-Sense appið geturðu séð stöðu skynjaranna þótt þú sért ekki heima og færð tilkynningu um leið og eldur greinist. Skynjararnir tengjast appinu í gegnum grunnstöðina SBS50, og einnig er hægt að fá tilboðspakka með þremur reykskynjurum og grunnstöð.
2. Kolmónoxíðskynjari (CO-skynjari)
Kolmónoxíð er lyktarlaus og ósýnileg gastegund og CO-skynjari er því mikilvægur yfir veturinn, sérstaklega þar sem er arinn, kamína eða annað brennandi eldsneyti. Skynjari með skjá sýnir styrk kolmónoxíðs innandyra og snjallútgáfur senda tilkynningar í símann.
3. Sameinaður reyk- og CO-skynjari
Ef þú vilt ekki setja upp of mörg tæki getur sameinaður reyk- og kolmónoxíðskynjari verið góður kostur. Hann veitir tvöfalda vörn í einu tæki og snjallútgáfur senda tilkynningar í rauntíma.
4. Hitaskynjari
Hitaskynjari hentar vel í eldhús og bílskúr, þar sem reykskynjarar fara gjarnan í gang að óþörfu. Hann bregst við hröðum hitabreytingum og veitir þannig aukna vörn.
Snjallir skynjarar veita hugarró yfir jólin og allt árið um kring. Þeir sameina forvarnir, skjóta viðvörun og vöktun í rauntíma. Þú getur skoðað allar vörur X-Sense á x-sense.is.
Niðurstaða
Hátíðirnar eiga að vera fullar af hlátri, kærleika og hlýju, ekki áhyggjum. Með því að fylgja þessum ráðum geturðu komið í veg fyrir óhöpp og notið gleðilegra jóla.
Allt frá öruggum jólaskreytingum til snjallra reyk- og CO-skynjara: lítil skref skipta miklu máli. Gefðu fjölskyldunni hugarró í jólagjöf í ár og njóttu hátíðarinnar vitandi að heimilið er öruggt.
Algengar spurningar
Hver eru helstu öryggisráðin yfir hátíðirnar?
Farðu aldrei frá eldamennskunni, yfirfarðu snúrur og seríur og haltu eldfimum hlutum frá hitagjöfum. Settu upp reyk- og CO-skynjara til að vernda heimilið.
Hverjar eru tíu grunnreglur um örugg jól?
- Yfirfarðu seríur og aðventuljós
- Vökvaðu jólatréð
- Farðu varlega með kerti
- Ofhlaðið ekki innstungur
- Taktu tæki og seríur úr sambandi fyrir svefninn
- Hafðu auga með börnum og gæludýrum
- Settu upp skynjara
- Haltu útgönguleiðum greiðfærum
- Geymdu eldspýtur og kveikjara á öruggum stað
- Vertu á varðbergi
Hvað þarf að hafa í huga varðandi jólaskraut?
Notaðu skraut sem er tregbrennanlegt, forðastu oddhvasst skraut og glerskraut og hafðu skreytingar þar sem börn og gæludýr ná ekki til.
Hvað felst í öryggisvitund í desember?
Að átta sig á hættum sem fylgja árstímanum, allt frá brunahættu til ferðalaga, og gera ráðstafanir fyrir fram til að koma í veg fyrir óhöpp.
Hver eru góð ráð fyrir veturinn?
Haltu gönguleiðum hálkulausum, notaðu rafmagnsofna og hitablásara rétt og gættu að góðri loftræstingu þegar þú kyndir heimilið.
