Frí heimsending yfir 15.000 kr.

Eldvarnir

Leki og loftgæði

Heimilisöryggi

Grunnstöð og aukahlutir

PakkasmiðjanVeistu ekki hvað þú þarft?

Svaraðu nokkrum spurningum og við setjum saman pakka sem passar þínu heimili.

Opna pakkasmiðjunaSkoða allar vörur
ReykskynjararLeiðbeiningarEldvarnir

Af hverju þarf að skipta um reykskynjara á 10 ára fresti?

Reykskynjarar endast ekki að eilífu. Ryk, skordýr og tæring geta skert virkni þeirra með árunum. Hér er útskýrt af hverju skipta á um reykskynjara á 10 ára fresti.

3 mín. lestur Ritstjórn Reykvarnar Uppfært

Reykskynjari gefur frá sér hátt hljóð þegar hann greinir reyk til að vara þig við eldi á heimilinu. Hann getur líka pípt með hléum við ákveðnar aðstæður. Slíkt píp þýðir ekki að það sé kviknað í heldur að reykskynjarinn þarfnist athygli. En vissirðu að skipta þarf um alla reykskynjara á 10 ára fresti? Ástæðan er sú að með tímanum geta skordýr, ryk, tæring í rafeindabúnaði og óhreinindi í loftinu komið í veg fyrir að hann virki sem skyldi.

Hér förum við yfir af hverju það skiptir máli að endurnýja reykskynjarann á 10 ára fresti.

Af hverju á að skipta um reykskynjara á 10 ára fresti?

Eins og önnur rafeindatæki endast reykskynjarar ekki að eilífu. Almennt er mælt með því að skipta um alla reykskynjara þegar þeir eru orðnir 10 ára, líka skynjara með 10 ára rafhlöðu og skynjara sem eru tengdir við rafmagn, eða fyrr ef þeir bregðast ekki rétt við þegar þeir eru prófaðir.

Reykskynjarar eru ódýr tæki sem auðvelt er að setja upp víða á heimilinu og láta vita greinilega þegar reykur myndast nálægt þeim. Þeir geta bjargað lífi þínu ef eldur kemur upp og gegna því afar mikilvægu hlutverki. En eftir ákveðinn tíma þarf að endurnýja þá. Hér eru ástæðurnar.

Hugarró

Reykskynjari vaktar heimilið stöðugt, allan sólarhringinn, og það þarf hvorki að slökkva á honum né taka hann úr sambandi. Hvort sem skynjarinn gengur fyrir rafhlöðu eða er tengdur við rafmagn gefur hann ljós- og hljóðmerki ef skipta þarf um rafhlöðu eða ef eitthvað er að. Þannig geturðu fylgst með því að hann virki rétt. Samtengdir reykskynjarar fara auk þess allir í gang ef einn þeirra greinir reyk, svo þú færð viðvörun eins fljótt og hægt er. Nýr skynjari sem er innan endingartíma veitir þér vissu um að þessi vörn sé til staðar.

Reglur og ábyrgð

Ef þú leigir út húsnæði er mikilvægt að tryggja að þar séu virkir reykskynjarar sem eru innan endingartíma. Kynntu þér gildandi reglur hjá HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun) eða slökkviliðinu á þínu svæði.

Það er því mikilvægt að endurnýja reykskynjara, og einnig kolmónoxíðskynjara, þegar endingartími þeirra er liðinn.

Góð ráð þegar nýir reykskynjarar eru settir upp

Þegar þú setur upp reykskynjara er gott að hafa eftirfarandi í huga:

  • Settu reykskynjara á hverja hæð, bæði inni í svefnherbergjum og fyrir utan þau.
  • Staðsettu skynjarann sem næst miðju lofti herbergisins.
  • Settu skynjarann ekki nálægt hitagjöfum.
  • Hafðu hann að minnsta kosti 90 cm frá hornum og, ef hann er á vegg, 10–15 cm frá lofti.
  • Settu skynjarann ekki nálægt loftræstiopum eða viftum sem geta blásið reyknum frá honum.
  • Hafðu hann ekki nálægt gufu úr sturtu, matarbrælu eða hita frá bakaraofni, svo hann fari ekki í gang að óþörfu.

Sjá nánar um hvar best er að staðsetja reyk- og CO-skynjara.

Taktu aldrei rafhlöðuna úr reykskynjara þótt hann hafi farið í gang vegna raka, matarbrælu eða annars sem er ekki hættulegt.

Það stöðvar vissulega falska viðvörun, en þú gætir gleymt að setja rafhlöðuna aftur í. Reykskynjari án rafhlöðu skilur þig eftir óvarða(n) ef eldur kemur upp.

Færðu skynjara sem fara oft í gang að óþörfu og notaðu viftu eða útsog í eldhúsi og baðherbergi.

Reykskynjarar eru ekki dýr tæki. En eins og fram hefur komið er mikilvægt að skipta um þá á 10 ára fresti vegna ryks, skordýra og tæringar sem safnast upp með árunum. Á x-sense.is finnurðu meðal annars tilboðspakka með þremur samtengdum snjallreykskynjurum og grunnstöð, sem hentar vel þegar endurnýja á skynjarana á heimilinu.

Byggt á grein frá X‑Sense.