Refund policy

Skil og endurgreiðsla

Síðast uppfært: 9. nóvember 2026

14 daga skilaréttur

Þú getur hætt við kaup og skilað vöru innan 14 daga frá því að þú fékkst hana afhenta, án þess að gefa upp ástæðu, samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016.

Svona skilar þú vöru

  1. Sendu okkur tölvupóst á X-sense@reykvorn.is innan 14 daga frá móttöku. Taktu fram nafn, pöntunarnúmer og hvaða vöru þú vilt skila.
  2. Sendu vöruna til okkar eða komdu með hana innan 14 daga frá því að þú lést okkur vita. Heimilisfangið er Reykvörn ehf., Gylfaflöt 28, 112 Reykjavík.
  3. Við endurgreiðum þér um leið og varan hefur borist okkur.

Ástand vöru

Þú mátt skoða vöruna eins og þú myndir gera í verslun. Best er að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Ef verðmæti vörunnar hefur rýrnað vegna meðferðar umfram það sem þarf til að kanna eiginleika hennar og virkni getum við dregið þá rýrnun frá endurgreiðslunni.

Endurgreiðsla

  • Við endurgreiðum kaupverðið og upphaflegan sendingarkostnað (miðað við ódýrasta sendingarmáta sem í boði var) eigi síðar en 14 dögum eftir að við fréttum af því að þú viljir hætta við.
  • Við megum bíða með endurgreiðsluna þar til varan hefur borist okkur.
  • Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema um annað sé samið.

Sendingarkostnaður við skil

Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöru til baka þegar hætt er við kaup. Ef varan er gölluð eða við sendum ranga vöru greiðum við allan sendingarkostnað.

Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara er gölluð eða ekki sú sem þú pantaðir skaltu hafa samband við okkur eins fljótt og hægt er. Við bjóðum þá nýja vöru, viðgerð eða fulla endurgreiðslu. Við veitum allt að 5 ára ábyrgð á X‑Sense vörum (2 ár á lekaskynjurum). Ábyrgðin skerðir ekki rétt þinn samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003.

Tilboðsvörur

Skilaréttur og ábyrgð gilda líka um vörur sem keyptar eru á tilboði.

Hafðu samband

Reykvörn ehf., Gylfaflöt 28, 112 Reykjavík, kt. 420824-0920
X-sense@reykvorn.is