Við vitum aldrei hvenær neyðarástand skapast, því slíkt gerist yfirleitt fyrirvaralaust. Þótt aldrei sé hægt að útiloka slys alveg getum við dregið verulega úr afleiðingum þeirra með því að undirbúa heimilið, fjölskylduna og gæludýrin.
Flestum finnst tiltölulega einfalt að undirbúa fjölskylduna fyrir eldsvoða, en hvað með gæludýrin? Hvernig er hægt að tryggja öryggi gæludýra gegn eldi á heimilinu? Hér eru einföld en áhrifarík ráð.
Eldvarnaráð fyrir gæludýraeigendur
1. Forðastu opinn eld
Skildu gæludýrið aldrei eftir eitt nálægt opnum arni eða logandi kertum. Dýr geta auðveldlega rekið skottið í logann eða velt um kerti. Besta forvörnin er að fjarlægja opinn eld þar sem dýrin ná til og nota frekar rafhlöðukerti, sem skapa sömu notalegu stemninguna án loga. Þetta á ekki síst við í skammdeginu, þegar kerti og aðventuljós eru á flestum heimilum.
2. Gerðu heimilið gæludýravænt
Reyndu að gera heimilið eins öruggt fyrir dýrin og hægt er, svo minni líkur séu á að þau valdi óvart eldsvoða. Þetta geturðu til dæmis gert:
- Festu lausar snúrur og lagaðu skemmdar leiðslur.
- Settu glerskálar ekki á eldfimt undirlag, svo sem viðarpall, þar sem sólin getur skinið í gegnum þær.
- Settu hlífar eða barnalæsingar á takkana á eldavélinni, eða taktu takkana alveg af ef þú vilt.
3. Gerðu flóttaáætlun
Gerðu flóttaáætlun þar sem fram koma bestu útgönguleiðirnar. Allir á heimilinu þurfa að vita hvernig best er að komast út úr hverju herbergi ef eldur kemur upp. Gæludýrin eiga að vera hluti af áætluninni og gott er að hafa búr eða tauma tilbúna við útgangana. Æfið flóttaáætlunina nokkrum sinnum á ári, með dýrunum, svo allir þekki leiðirnar og þið sjáið hvort eitthvað þurfi að bæta.
4. Settu upp reykskynjara
Reykskynjarar eru undirstaða eldvarna á hverju heimili. Snjallreykskynjarar senda tilkynningu í símann þinn um leið og þeir greina reyk, þannig að þú færð að vita af eldi jafnvel þegar gæludýrið er eitt heima. Með samtengjanlega snjallreykskynjaranum XS01-M fara allir skynjarar á heimilinu í gang ef einn greinir reyk.
5. Láttu viðbragðsaðila vita af gæludýrunum
Settu límmiða eða merki í glugga við útidyrnar sem sýnir að gæludýr séu á heimilinu, svo slökkviliðið viti að dýr gætu þurft aðstoð. Ef þú hefur dýrin í búri þegar þú ert ekki heima er gott að hafa búrið nálægt útgangi svo auðvelt sé að finna þau og bjarga þeim.
6. Taktu eftir hvar gæludýrið heldur sig og felur sig
Dýr skynja oft hættu og hlaupa í felur af hræðslu. Ef þú veist fyrir fram hvar þau eiga það til að fela sig sparar það dýrmætan tíma í neyð. Æfðu dýrin líka í að vera róleg í búri og fara inn í það, svo auðveldara sé að koma þeim út þegar hver sekúnda skiptir máli. Gott er að taka frá einn dag á ári til að æfa eldvarnir með dýrunum svo þau venjist æfingunum.
7. Hafðu símanúmer dýraspítala eða dýralæknis við höndina
Skráðu hjá þér símanúmer og heimilisfang næstu dýralæknastofu svo þú getir haft samband strax ef gæludýrið slasast.
8. Taktu gæludýrin með ef fjölskyldan þarf að yfirgefa heimilið
Skildu gæludýrin aldrei eftir, þau eru hluti af fjölskyldunni. Ef þau eru skilin eftir aukast líkurnar á að þau týnist, lokist inni eða lendi í hættu. Ekki er alls staðar tekið við dýrum í neyðarhúsnæði, svo það er gott að hafa ákveðið fyrir fram hvert þú ferð með þau. Þetta geturðu til dæmis gert:
- Kynntu þér hótel eða gistiheimili sem taka við gæludýrum.
- Talaðu við ættingja, vini eða trausta nágranna og spurðu hvort þeir geti litið eftir dýrunum.
- Kannaðu hvort dýraathvörf eða hundahótel og kattahótel geti tekið dýrin að sér tímabundið.
9. Útbúðu neyðartösku fyrir dýrin
Búðu þig undir það versta með því að taka saman nauðsynjar og neyðarbúnað ef þið þurfið að yfirgefa heimilið. Jafnvel þótt útlit sé fyrir að þið verðið aðeins að heiman í einn dag skaltu miða við að vera í burtu í nokkrar vikur. Þessi atriði flýta fyrir:
- Gakktu úr skugga um að dýrin séu alltaf með ól og merkispjald með réttum upplýsingum: nafni dýrsins, símanúmeri þínu og mikilvægum heilsufarsupplýsingum.
- Örmerking er áreiðanleg leið til að bera kennsl á dýr, því dýralæknar og dýraathvörf geta lesið örmerkið á fljótlegan hátt.
- Geymdu neyðartöskuna nálægt útgangi ásamt taumum og búrum svo auðvelt sé að grípa hana. Gakktu úr skugga um að allir á heimilinu viti hvar hún er.
Algengar spurningar um eldvarnir og gæludýr
Hvað á að gera við gæludýrin ef eldur kemur upp?
Finndu dýrin strax, settu þau í taum eða búr svo þau hlaupi ekki burt og komdu þér að næsta útgangi. Ef þú finnur þau ekki skaltu fara strax út en skilja dyrnar eftir opnar og kalla nöfn þeirra á leiðinni, svo þau geti fylgt röddinni þinni út. Hringdu í 112 og láttu slökkviliðið vita strax við komu ef dýrin eru enn inni, svo það geti leitað að þeim.
Bjarga slökkviliðsmenn gæludýrum?
Já, slökkviliðsmenn eru þjálfaðir í að bjarga dýrum og leggja sig fram um það, sérstaklega í eldsvoðum. Þeir taka líka eftir merkjum í gluggum sem sýna að gæludýr séu á heimilinu.
Eru slökkvitæki hættuleg hundum?
Efnið úr slökkvitækjum er almennt talið skaðlítið fyrir hunda í litlu magni. Ef hundurinn hefur orðið fyrir miklu magni af slökkviefni er þó rétt að hafa samband við dýralækni.
Skynja hundar eld?
Já, hundar geta skynjað eld með frábæru lyktarskyni sínu og næmri heyrn. Þeir finna ekki bara lyktina af reyknum heldur geta þeir líka heyrt í eldinum þegar hann breiðist út.
Hvert fara dýr þegar eldur kemur upp?
Flest dýr eru mjög hrædd við eld og gæludýr eru engin undantekning. Ef eldur kemur upp flýja flest gæludýr í ofboði og fela sig einhvers staðar í húsinu, eða sleppa jafnvel út. Þau leita gjarnan í felustaði þar sem erfitt er að finna þau, svo sem í skúmaskot, undir sófa eða inn í skápa.
Hversu marga húsbruna valda gæludýr?
Samkvæmt bandarísku brunavarnasamtökunum NFPA valda gæludýr óvart um 1.000 húsbrunum á ári þar í landi.
Niðurstaða
Þótt aldrei sé hægt að útiloka eldsvoða alveg geturðu dregið verulega úr afleiðingum hans með góðum undirbúningi. Með því að fylgja þessum ráðum og skipuleggja fram í tímann verndarðu gæludýrin þín og dregur um leið úr líkum á að eldur kvikni yfirleitt.
